Quantcast
Channel: Snerpa.is - Tilkynningar
Viewing all 188 articles
Browse latest View live

Truflanir á netþjónustu og IPTV

$
0
0

Það kom upp bilun í miðlægum búnaði um 15:30 í dag og hafði það áhrif á netsambönd í um 10 mínútur auk sjónvarpsþjónustu. Unnið er að viðgerðum á sjónvarpsþjónustu.

Uppfært 16:30: Allar þjónustur eru komnar í lag.


Truflanir á netþjónustu í efribænum

$
0
0

Notendur á Hlíðarvegi, Seljalandsvegi, Engjavegi og Urðarvegi gætu fundið fyrir einhverjum truflunum á milli 15:00 - 16:00 í dag, 20. febrúar, við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Uppfært 15:45: Endabúnaður var endurræstur og engar frekari truflanir ættu að vera í kjölfarið, ef að net kemur ekki inn skaltu endurræsa beinir og hafa samband við 520-4000 ef að það kemur ekki inn við endurræsingu.

Rafmagnstruflanir á eyrinni

$
0
0

Vegna rafmagnstruflana á eyrinni á Ísafirði geta komið upp truflanir á fjarskiptaþjónustu.

Orkubúið er að vinna að greiningu, nánari upplýsingar þegar þær liggja fyrir.

Uppfært 14:44
Rafmagn er komið aftur á og er líkleg bilun í streng innabæjar. Þetta hafði áhrif á almenna notendur í neðri hluta bæjarins sem og nokkurra fyrirtækja.

Ekki er búist við frekari truflunum vegna þessa.

 

Truflanir hjá notendum á Ljósneti og ADSL

$
0
0

Notendur sem tengjast um Ljósnet og ADSL frá Mílu munu finna fyrir truflunum á tímabilinu millikl. 01 og 05 í nótt vegna vinnu við búnað í Búðardal. Truflanir verða á bæði net- og sjónvarpsþjónustu.

Notendur gætu þurft að endurræsa búnað að vinnu lokinni og skal þá endurræsa router fyrst og síðan myndlykil eftir að router er kominn í gang.

Bilunin ætti ekki að hafa áhrif á aðra notendur en þó fer hluti útlandasambanda einnig sömu leið og gætu orðið truflanir af þess völdum í stutta stund, sérstaklega á YouTube.

Við viljum nota tækifærið og vekja athygli á póstlista okkar um kerfistilkynningar þar sem sendar eru út allar tilkynningar um rof eða truflanir, en á þessarri síðu er yfirleitt einungis getið um truflanir sem hafa áhrif á umtalsverðan hluta notenda. Póstlistann má nálgast á vefslóðinni http://listar.snerpa.is/mailman/listinfo/kerfi

Netlaust á hluta Engjavegar

$
0
0

Verktaki sleit í sundur símastreng í Urðavegsbrekkunni klukkan rúmlega 16 í dag með þeim afleiðingum að net- og símalaust er hjá hluta heimila á Engjavegi.

Samkvæmt upplýsingum frá Mílu er ekki búist við að viðgerðir hefjist fyrr en í fyrramálið.

 

Uppfært: 31.5.2017 kl: 14:00. Míla hefur lokið við viðgerð á strenginum.

Rof á netsambandi á Suðureyri

$
0
0

Rof varð á netsambandi á Suðueyri rétt eftir kl 10:00 vegna vinnu Mílu á staðnum. Ekki liggur fyrir hversu lengi það mun vara.

Uppfært kl 10:28
Netsamband er nú komið á aftur.

Bilun í netsímakerfi

$
0
0

Eftir rafmagnsleysi á Vestfjörðum hafa verið truflanir á netsímakerfi Snerpu.

Unnið er að viðgerðum.

Bilun í Hnifsdal og Bolungarvík

$
0
0

Klukkan 10:25 kom upp bilun út í Bolungarvík sem hefur áhrif á fjarskipta þjónustu bæði í Bolungarvík og Hnífsdal.

Unnið er að viðgerðum og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

 

Uppfært 10:33:

Samband er komið upp aftur og ætti allt að vera komið í rétt stand á ný.


Bilun í netsímkerfi

$
0
0

Um klukkan 16:40 í dag kom upp bilun í símkerfi sem getur haft áhrif á símaþjónustu hjá aðilum sem eru með netsíma frá Snerpu, við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Uppfært:

Netsímaþjónusta er komin upp aftur og símar eru að skrá sig inn hver á eftir öðrum.

Truflanir í innanlandssamböndum

$
0
0

Kl. 14:07 Truflanir eru á sambandi Snerpu við Tæknigarð, FSNET og mögulega fleiri aðila. Þetta veldur einnig truflunum í símakerfum sem fara sömu leið. Þar sem útlandasambönd fara tvær leiðir og þetta er önnur af þeim skapast einnig truflanir á þeim í sumum tilfellum. Verið er að athuga hvað veldur.

kl. 14:23 Orsökin mun vera ljósleiðaraslit hjá Mílu. Ekki er ljóst á þessarri stundu hvort öll sambönd eru á varaleið um Djúpið en hluti þeirra er það a.m.k. Álag á þau sambönd er þó meira sem leiðir til tafa og hljóðtruflana í símakerfum. Auk þess er dreifing á útvarpi og sjónvarpi sums staðar óvirk eða léleg.

kl. 14:40 Búið er að staðsetja slit á ljósleiðara nálægt tengibrunni við Krossholt á Barðaströnd. Viðgerðarteymi Mílu er að vinna í málinu.

kl. 16:18 Staðan er eins en varaleiðin virðist ráða við álagið og þess vegna eru hætt (amk. í bili) vandamál með símakerfi og almenn netumferð eðlileg að mestu. IP-sjónvarp er hinsvegar úti og verður þar til viðgerð lýkur en viðgerðir á svona slitum taka að jafnaði um 8 klst. Einnig hefur frést af truflunum á útvarpsútsendingum vegna þessa.

kl. 22:17 Sambönd eru komin upp aftur.

Slit á ljósleiðara í Miðtúni

$
0
0

Verktaki tók í sundur ljósleiðara í Miðtúni klukkan 16:04 í dag 26.07.17.

Hluti ljósnotenda á Seljalandsvegi og í Miðtúni eru úti þar til að viðgerðum verður lokið.

Uppfært kl. 20:18 Hluti þeirra notenda sem voru úti er komnir með samband eftir að bráðabirgðaviðgerð lauk í kvöld. Sökum aðstæðna á vinnusvæðinu þar sem leiðarinn slitnaði verður ekki hægt að ljúka fullnaðarviðgerð fyrr en í fyrramálið. 

Uppfært 27.07.17 kl. 09:53 Rof verður á sambandi vegna fullnaðarviðgerða og má gera ráð fyrir því að rof standi yfir til klukkan 14:00 í dag.

Uppfært 27.07.17 kl. 17:00 Viðgerð lokið.

Truflanir á netsamböndum

$
0
0

Í gærkvöldi komu fram truflanir á hluta netsambanda. Sérstaklega var þetta áberandi á Netflix, YouTube og mbl.is. - Vandamálið virðist tengjast sambandi okkar við Símann en síðan tilkynnti Vodafone einnig um truflanir í samböndum í gærkvöldi og í morgun. Við erum að rekja vandamálið og vonumst til að vera komin fyrir það fljótlega en biðjum notendur að hafa þolinmæði á meðan. Búast má við að eitthvað beri á truflunum fram eftir degi á meðan verið er að komast fyrir vandamálið.

Uppfært kl. 8:57 - Búið er að finna bilun í ljósleiðarasambandi við Símann. Verið er að einangra bilun og greina nánar.

Uppfært kl. 9:10 - Við höfum tekið niður sambandið sem við teljum að hafi valdið truflununum og umferð fer um aðrar leiðir á meðan. Stefnum þó að því að setja það upp um leið og kostur er.

Uppfært kl. 10:44 - Viðgerð á ljósleiðarasambandi lokið og hefur það verið tekið í notkun aftur. Líklegt er að þetta hafi verið upphaf og endir vandamálsins en við fylgjumst með þessu áfram.

 

Truflanir á netsambandi á Ísafirði

$
0
0

Eftir rafmagnsleysið í nótt kom upp bilun í símstöð og hefur það áhrif á xDSL notendur sem tengdir eru í gegnum ISAF-7 búnaður var endurræstur klukkan 9:10 í morgun og aftur klukkan 12:05 þetta virðist ekki hafa dugað en unnið er að því að finna lausn á vandamálinu

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Uppfært 17:30 - Öll sambönd ættu að vera komin í lag, notendur gætu þurft að endurræsa endabúnaði.

Truflanir í Stakkanesi, Miðtúni og Seljalandsvegi

$
0
0

Truflanir verða á netsambandi, IPTV og síma hjá ljósleiðaranotendum í Miðtúni, Stakkanesi og Seljalandsvegi vegna vinnu við búnað.

 

Frá: 05/02/2018 kl 10:30

Þar til viðgerð lýkur

 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Truflanir á Sjónvarpi Vodafone

$
0
0

Vegna viðhaldsvinnu hjá Vodafone í nótt kom upp bilun á sjónvarpsflutningi hingað vestur. Bilun nær ekki til allra rása.

Vodafone vinnur nú að viðgerð.

Uppfært kl 11:00: Viðgerð á bilun er lokið hjá Vodafone og á sjónvarpsstraumur að virka eðlilega.

 


Truflanir á Suðureyri

$
0
0

Vegna rafmagnsleysis á Suðureyri geta notendur fundið fyrir truflunum á neti og sjónvarpsútsendingu.

 

Uppfært 12:05: Rafmagn er aftur komið á og ættu allir notendur að vera komnir með samband aftur

Bilun í ljósleiðarasambandi Mílu

$
0
0

Upp kom bilun í ljósleiðara milli Bíldudals og Ísafjarðar og hefur hún áhrif á sjónvarpsþjónustu.

Unnið er að viðgerð

14:47 Enn er ekki búið að staðsetja bilun í ljósleiðara. 
15:10 Bilun í Nato streng milli Krossholts og Búðardals, líklega strengslit en unnið er að bilanagreiningu. Varasambönd eru að komast í gagnið.
15:30 Viðgerð lokið

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum, sem þetta kann að valda.

Bilun í ljósleiðara milli Þingeyrar og Ísafjarðar

$
0
0

Upp hefur komið bilun í ljósleiðara Mílu á milli Þingeyrar og Ísafjarðar. Talið að hann sé rofinn í Breiðadal. Þetta hefur áhrif á sjónvarpsþjónustu Vodafone og samband Snerpu á Þingeyri. Umferð Snerpu til Reykjavíkur fer um varaleið en bilunin getur valdið töfum, sérstaklega á innanlandssamböndum þar til viðgerð er lokið. Viðgerð lauk kl 02:15.

Ljósleiðaraslit í Fjarðarstræti

$
0
0

Verktaki sem var að vinna við gröft við Fjarðarstræti sleit í sundur ljósleiðara um kl 11:30 í dag. Slitið hefur áhrif á netnotendur í Fjarðarstræti, Austurveg, Sundstræti, Tangagötu og Grundargötu.

Uppfært 11:45: Unnið er að viðgerð.

Uppfært 12:00: Þar sem um stofnstreng er að ræða að þá má búast við að viðgerðir verði að minnsta kosti fram á kvöld.

Uppfært 20:45: Notendur eru byrjaðir að detta inn og ættu flestir að detta inn á næsta klukkutímanum.

Uppfært 23:20: Öll sambönd komin in kl 22:40

Færsla á búnaði á Bíldudal

$
0
0

Vegna færslu búnaðar verður rof á xDSL þjónustu hjá notendum á Bíldudal miðvikudaginn 31. október á tímabilinu 13:00
- 15:00.

Rofið gæti varað í allt að 20 mínútur.

Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem af þessu kann að stafa.

kv, Snerpa.

Uppfært 31.10.2018 kl 11:24 - Þessi vinna frestast fram til föstudags 2 nóv, vegna óviðráðanlegra orsaka.

Uppfært 01.11.2018 kl 9:00 - Vegna færðar og veðurspár verður þessi vinna framkvæmd í dag 1. nóv, á tímabilinu 14:00- 16:00.

Viewing all 188 articles
Browse latest View live